Fyrsti leikur strákanna okkar á EM í Frakklandi fer fram á Stade Geoffroy-Guichard vellinum í Saint-Étienne þann 14. júní. Klukkan 21:00 að staðartíma, 19:00 að íslenskum tíma. Hér er upphitunarpistill um völlinn sjálfan. Fullt af myndböndum, fullt af mörkum, fullt af skemmtun.
Upphitunarpistill: Austurríki
Nú er komið að þriðja upphitunarpistlinum. Fyrst var það Portúgal, svo Ungverjaland og nú er komið að síðasta landinu sem er með okkur Íslendingum í F-riðli, Austurríki. Árni Súperman tekur svo við af mér hér í upphitunarhorni Tólfunnar og kemur með einhvern skemmtilegan fróðleik á næstu dögum.
Upphitunarpistill: Ungverjaland
Enn styttist í EM í Frakklandi. Nú eru aðeins 18 dagar í að mótið hefjist og aðeins 22 dagar í fyrsta leik okkar manna. Áfram höldum við með upphitunarpistlana. Fyrsti pistillinn fjallaði um Portúgal, nú er komið að öðrum mótherjum okkar á mótinu, Ungverjalandi.
Upphitunarpistill: Portúgal
Við í Tólfunni erum orðin alveg gríðarlega spennt fyrir EM í Frakklandi. Enda ekki annað hægt þar sem veislan sjálf, lúxushlaðborðið, gúrmei gúmmelaðið, byrjar eftir þrjár vikur. 3 vikur! Það er ekki neitt. Ég (Halldór Marteins) og Árni Súperman ætlum að henda í nokkra létta upphitunarpistla til að eftirvæntingafullt og yfirspennt stuðningsfólk hafi eitthvað smávegis að dunda sér við fram að móti. Svo er aldrei að vita nema einhverjir fleiri Tólfusnillingar komi með hresst efni hingað inn, endilega fylgist með. Continue reading “Upphitunarpistill: Portúgal”
Íslenski hópurinn á EM
Það er búið að tilkynna 23 manna hóp sem áætlað er að fari á EM í Frakklandi í sumar. Auk þeirra hafa 6 verið beðnir um að vera tilbúnir til að svara kallinu ef það verða einhver forföll.