16-liða úrslit í lokakeppni EM. 16 bestu karlalandslið Evrópu. Síðasti leikurinn í 16-liða úrslitum, þarna kemur í ljós hvaða lið verður síðast til að tryggja sig inn í 8-liða úrslitin. Í bláa horninu, víkingarnir frá Íslandi. Í hvíta horninu, ljónin frá Englandi. Nú verður allt gefið í þetta. Okkar menn eru ekki saddir, þeir vilja meira. Þeir eru enn hungraðir. Þá langar í ljónasteik. Verði ykkur að góðu!
Leikdagur: Ísland – Austurríki
Íslenska liðið hefur nú klárað 2 leiki á EM 2016. Það er enn taplaust, það er eina liðið af 33 sem tekið hefur þátt í lokamóti EM án þess að tapa leik. Báðir leikirnir enduðu 1-1. Nú er allt undir, lokaleikur riðlakeppninnar, eftir hann kemur í ljós í hvaða sæti Ísland lendir í F-riðlinum. Ísland getur lendað í 1.-4. sæti, það er allt í járnum. Hvílík spenna!
Leikdagur: Ísland – Ungverjaland
Þá er það annar leikur Íslands á EM 2016. Fyrsti leikurinn var magnaður. Frábær skemmtun, frábær frammistaða og frábær úrslit. Nú er komið að því að mæta Ungverjum.
Leikdagur: Portúgal – Ísland
Jæja, þá er komið að því! Sögulegur dagur, sögulegur leikur, sögulegur leikdagur! Íslenska A-landslið karla hefur nú leik á sínu fyrsta stórmóti. Þvílík veisla.