Enn styttist í EM í Frakklandi. Nú eru aðeins 18 dagar í að mótið hefjist og aðeins 22 dagar í fyrsta leik okkar manna. Áfram höldum við með upphitunarpistlana. Fyrsti pistillinn fjallaði um Portúgal, nú er komið að öðrum mótherjum okkar á mótinu, Ungverjalandi.
Upphitunarpistill: Portúgal
Við í Tólfunni erum orðin alveg gríðarlega spennt fyrir EM í Frakklandi. Enda ekki annað hægt þar sem veislan sjálf, lúxushlaðborðið, gúrmei gúmmelaðið, byrjar eftir þrjár vikur. 3 vikur! Það er ekki neitt. Ég (Halldór Marteins) og Árni Súperman ætlum að henda í nokkra létta upphitunarpistla til að eftirvæntingafullt og yfirspennt stuðningsfólk hafi eitthvað smávegis að dunda sér við fram að móti. Svo er aldrei að vita nema einhverjir fleiri Tólfusnillingar komi með hresst efni hingað inn, endilega fylgist með. Continue reading Upphitunarpistill: Portúgal
Íslenski hópurinn á EM
Það er búið að tilkynna 23 manna hóp sem áætlað er að fari á EM í Frakklandi í sumar. Auk þeirra hafa 6 verið beðnir um að vera tilbúnir til að svara kallinu ef það verða einhver forföll.
EM2016 MÁL
Heilar og sælar Tólfur…
Nú er umsóknarfresturinn liðinn og biðin eftir svarinu hafin og allir farnir að naga neglurnar…
Treyjumálin eru loksins að detta í ljúfann farveg og verða þau mál kynnt fljótlega… Continue reading EM2016 MÁL
MIÐAMÁL EM 2016
Heilar og sælar Tólfur.
Eins og ég lofaði þá fór ég í þau mál að kynna mér hvernig skal standa að miðaumsókn til þess að við getum nú öll setið saman í stúkunni og sat ég fund hjá KSÍ í dag vegna þess.. Continue reading MIÐAMÁL EM 2016