Úrdráttarpistill

Þegar kemur að því að setja saman draumariðil fyrir strákana okkar á EM 2016 er margt sem hægt er að huga að. Það er hægt að taka mismunandi vinkla á þessu öllu saman. Til dæmis er hægt að taka grunntilfinningu á þetta, hvaða lið væri skemmtilegt að fá með Íslandi í riðil. Ef það væri reglan þá hefði ég til dæmis hent í Írland og Norður-Írland sem óskamótherja, það er bara eitthvað svo heillandi tilhugsun við að taka gott fótboltastórmótsdjamm með írsku frændum okkar. En þar sem báðar þessar þjóðir eru með Íslandi í styrkleikaflokki þá gengur það ekki upp. Continue reading Úrdráttarpistill →

Týnda tólfan

Heilt og sælt elsku tólfufólk, vonandi hafið þið öll það sem allra best.
Jóhann Ingi heiti ég og ætla ég að skrifa léttan pistil um dráttinn í lokakeppni EM í Frakklandi en það eru örfáir dagar í að við fáum að vita hvaða þjóðum við mætum á okkar fyrsta stórmóti A-landslið karla en drátturinn fer fram núna á laugardaginn þegar þessi pistill er skrifaður. Continue reading Týnda tólfan →

Sjúkraþjálfarinn

Ég starfa sem sjúkraþjálfari hjá A-landsliði karla í fótbolta ásamt þeim Stefáni Stefánssyni og Rúnari Pálmarssyni. Ég hef unnið með A-landslið karla í rúm 10 ár, eða síðan í október 2005.
Hlutverk okkar er aðallega að sjá um endurhæfingu, forvarnir og fræðslu fyrir leikmenn liðsins. Það getur verið eitt og annað í gangi hjá atvinnumanni í fótbolta þó að hann sé að spila alla leiki. Álagið hjá þessum strákum er mikið og það myndast stífleiki víða í líkamanum við allt þetta álag, en auk þess geta verið minniháttar meiðsli í gangi sem þarf að sinna. Continue reading Sjúkraþjálfarinn →